Thursday, November 23, 2006

Þar sem ég og sennilega allir aðrir nemendur skólans eru uppteknir við verkefni, og hvorki í þessari viku né síðustu hefur aldraður stórleikari heimsótt skólann og óbeðinn haldið fyrirlestur yfir kennurum um muninn á leiklist á svívirðu, sé ég enga ástæðu til að skrifa vandaðan pistil. Ég ætla hins vegar að vísa á atriði á veraldarvefnum sem gætu glatt augað:

http://youtube.com/watch?v=s-mOy8VUEBk

og

http://video.google.com/videoplay?docid=9029110643266711356&q=bush+was+right

Góðar stundir!
Friðgeir.

Sunday, November 12, 2006



adopt your own virtual pet!


Randver er röndóttur.

Friday, November 03, 2006

Af einhverjum á stæðum fletti ég upp ,,úrkynjuð list" á myndleitarsíðu Google og þetta var eina myndina sem kom fram:



Þetta er menntafrömuðurinn Jónas Jónsson frá Hriflu sem um miðbik síðustu aldar skar upp herör gegn formbreytingum og tilraunum í listum, m.a. með svokallaðri ,,háðungarsýningu" árið 1942 þar sem almenningi var gefinn kostur á að sjá hversu úrkynjuð samtímalist var þá orðin. Sökum mikillar andstöðu listamanna höfðu sýningarnar þveröfug áhrif, og urðu raunar til þess að efla samstöðu og félagsanda listamanna, sem og vitund þeirra fyrir eigin mikilvægi í samfélaginu. Margir af þeim listamönnum sem Jónas hafði hvað mestan ímugust á áttu seinna eftir að láta mikið að sér kveða og skipa ómissandi sess í íslenskri samtímamenningu.

Í dag finnast engir Hriflu-Jónasar í samféaginu og þess vegna fjallar almenningur ekki um list án þess að hafa myndað sér ígrundaða og rökstudda skoðun á hverju listaverki fyrir sig. Fólk lætur almennt vera að fella dóm yfir listamönnum án þess að vita hvað þeir eru að gera, hvað það gæti mögulega þýtt og við hverja hvert einstakt verk (eða hver tilraun, ef því er að skipta) á erindi. Það er alveg frábært.

Góðar stundir,
Friðgeir.